eftir Guðlaug Gunnarsson (C)
Sú er á meðal bóka minna sérstök, heilög bók,
já, Biblían, er Orð Guðs til mín talar.
Og leðurband og eðalpappír engu við það jók
því innihaldið er það sem mér svalar.
Ég les og kafa djúpt í orðin, drekk þau í mig öll,
þau eiga fólgin í sér kraft og gleði.
Því
Ritningin hún segir mér að Guðs son bar mitt böl
og bætti allt, er líf sitt lagði‘ að veði.
Hún segir mér hve undri lík Guðs elska sé til mín
þó einhvern veginn villst ég hafi‘ af vegi.
Í kærleik sínum laðar mig og kallar heim til sín,
í Kristi Jesú nýja von ég eygi.
Og þegar les ég
þessa bók þá talar Guð mín til,
hann tjáir mér sinn vilja og mig leiðir.
Sinn anda mér hann gefur svo hans vegi fylgja vil
og vegferð mína heim til Guðs mér
greiðir.
Svo dýrmæt er mér bókin sú er blessar lífið mitt
að ber ég þrá í hjarta‘ að aðrir merki.
Því alla menn í víðri
veröld elskar Guð svo heitt
að orð hans boða vil í lífi‘ og verki.
Guðlaugur Gunnarsson