Íslenska
Um glötunarveg
Gengið hef ég glötunarveg,
(Gekk ég eitt sinn glötunarveg)
áttum glataði, ég rataði‘ ekki heim.
Gengið hef ég glötunarveg,
enginn gat þar fundið frið sem hjálpar þeim
Gengið hef ég glötunarveg
en þú greipst mig þar og barst mig heila(n) heim.
Undir fótum mínum finn ég helga jörð
skónum fer ég úr, leggst í bænagjörð
(skónum fer ég úr, auðmjúk bæn er gjörð)
Ég sé ljós frá Drottins ljóma sem minn vörð
(Ég sé ljós frá Drottins ljóma standa vörð)
eins og leiftursýn sem mér aldrei dvín.
Gengið hef ég glötunarveg,
áttum glataði, ég rataði‘ ekki heim.
Gengið hef ég glötunarveg,
enginn gat þar fundið frið sem hjálpar þeim
Gengið hef ég glötunarveg
en þú greipst mig þar og barst mig heila(n) heim.
Með opinn faðm ég augun til þín hef
legg eyrun við, mér orð þitt gef
(Með opinn faðm til himins augun hef
ég heyri þig, mér boðskap gef.)
Án náðar þinna nístir dauðinn mig.
en næring mín er ástin þín.
(en nauðsyn mín er ástin þín.)
Gengið hef ég glötunarveg,
Gengið hef ég glötunarveg
Guðlaugur Gunnarsson 9. nóvember 2021
