Íslenska
Þú ert ekki einhver úti' á götu
Vers 1
Þú ert ekki einhver úti‘ á götu.
Þú sem átt þinn dugnað fyrir plóg.
Þú sem eltir lífsins ofurgæði
hugsar aldrei: Nú er komið nóg.
Viðlag:
Þú varst horfinn. Þú varst ekki heima
er hús á þér lífið sjálft tók
Þú varst farsæll alveg til enda
feyktir alvöru burtu með djók.
Þú varst horfinn. Þú varst ekki heima
er heimsótti lífið þinn garð.
Þú eltist heil ósköp við lífið,
misstir af því svo lítið úr varð.
Vers2
Þú ert ekki einhver úti‘ á götu.
keyrir útaf hvar sem hentar þér.
Með þitt heilsuarmbandsúr á hendi
þú ert herra Töff sem fólkið sér.
Viðlag
Brú:
Þú áttavillt manneskja ert
Alltaf samt að flýta þér.
Svo hugmyndalaus hver þú sért,
heldur burt er enginn sér.
Vers3
Þú ert ekki einhver úti‘ á götu.
Þú tókst ekki ábyrgð fyrir baun.
Þú gast aldei borið neinar byrðar.
Þú tókst bara þátt og fékkst þín laun.
Viðlag
Guðlaugur Gunnarsson þýddi
18. janúar 2024
