Íslenska
Huga kært
Guðs orð okkur mönnum ereilíft ljós á myrkum vegi,leiðsögn góð og lampi mérlokamarkið svo ég eygi.Heilagt orð Guðs, huga kært,huggun, von og líf mér gefur.Hjartað af því endurnærtelsku Guðs þar fundið hefur.
Sekri minni sálu færsvölun veitt og fyrirgefning.Segir mér að son Guðs kærsjálfur bæri mína hegning.Heilagt orð Guðs, huga kært,huggun, von og líf mér gefur.Hjartað af því endurnærtelsku Guðs þar fundið hefur.
Ljúfi Guð, þitt lífsins orðleiðir mig um réttar brautir.Náð þín er mér nægtaborð.Nafn þitt linar allar þrautir.Heilagt orð þitt, huga kært,huggun, von og líf mér gefur.Hjartað af því endurnærtelsku þína fundið hefur.
Guðlaugur Gunnarssonoktóber 2014
