Íslenska
Heimsins ljós
Hugrökk móðir, ung að aldri,átti barn um vetrarnótt.Von þá fæddist veröld kaldri,var í jötu lagður hljótt.Enginn vissi, allt var kyrrlátt,auðar götur, þorpið rótt,hátíð engin haldin var þá.Heimsins ljós kom þessa nótt.Fjármenn gætt þar höfðu hjarðar,hrukku við er ljós þeim skein.Lýsti himneskt ljós til jarðar.Lofsöng engla heyrðu þeir.Óttist ekki, engill sagði,ykkur son Guðs fæddur er!Farið skjótt og finnið barniðFaðmar móðir Guð að sér.Kyrrlátt og með kærleiksorðumKristur dvelur okkur hjá.Og hann kemur eins og forðumofan himni sínum frá.Jólanótt með kveðju kærrikemur Jesús enn með von.Einatt hjá mér er hann nærriEilíft lifir hann, Guðs son.Guðlaugur Gunnarsson þýddi6. desember 2009.
