Friður og gleði

Íslenska

Friður og gleði

Hjarta mitt fyllist friði og gleði fundið hef ég lífsins lindir    Sonur Guðs lagði líf sitt að veði laus ég er við mínar syndir.
Hjarta mitt fyllist heilögum anda hoppa ég vil fylltur gleði. Fiðringur nær til fóta og handa finn að vart ég við mig réði.

Hrópar hamingjugleði! Hlátur fögnuðinn téði! Dans og dásemdin réði! Dvöl á hamingjubeði!

Guðlaugur Gunnarsson, 28/8/2011