Íslenska
Ég vil lofa þitt ljúfa nafn
Þú Orð Guðs varst við upphaf heimsins,einn með Guði, tign þér ber!Þá dýrð er heimi fyrr var hulinbirt þú hefur, Kristur, mér.Viðlag1:Ég vil lofa þitt ljúfa nafn!Ég vil lofa þitt ljúfa nafn,þitt nafn, ó Jesús, Drottinn minn.Ég vil lofa þitt ljúfa nafn!Því nafni er enginn jafn.Ég vil lofa þitt ljúfa nafn,þitt nafn, ó Jesús.Þú vildir okkur hafa‘ á himnisvo þú himin færðir jörð.Mín synd var myrk, þín ást var meiri.Nú þín miskunn stendur vörð.Viðlag2:Ég vil elska þitt undra nafn!Ég vil elska þitt undra nafn,þitt nafn, ó Jesús, Drottinn minn.Ég vil elska þitt undra nafn!Því nafni er enginn jafn.Ég vil elska þitt undra nafn,þitt nafn, ó Jesús.Ég vil elska þitt undra nafn,þitt nafn, ó Jesús.Brú 1:Dauðinn er flúinn,fortjaldið rifið,sigrað þú hefur synd og gröf.Himinninn syngursöng þér til dýrðar,upprisinn gefur lífsins gjöf.Brú 2:Enginn þér líkur,enginn þig sigrar,einn Guð, um eilífð ríkja skalt.Já, þitt er ríkið,og þín er dýrðin,nafn þitt er æðst, það er mér allt.Viðlag3:Ég vil mikla þitt máttarnafn!Ég vil mikla þitt máttarnafn,þitt nafn, ó Jesús, Drottinn minn.Ég vil mikla þitt máttarnafn!Því nafni er enginn jafn.Ég vil mikla þitt máttarnafn,þitt nafn, ó Jesús.Brú2 og viðlag3 endurtekin:,: Ég vil mikla þitt máttarnafn,þitt nafn, ó Jesús. :,:Guðlaugur Gunnarsson þýddi,12. febrúar 2017.
