Íslenska
Þú sem býrð á helgum stað
1. erindi
Þú sem býrð á helgum stað og hlustar bænir á,
við hefjum lofsöng til þín, Guð.
Þú sem okkar faðir ert og frelsar syndum frá
í fögnuði lyftum við höndum, hátt upp til þín,
okkur færir þú blessun og líf.
Viðlag
Til þín syngjum lofsöngsljóð,
flytjum lífsins þakkaróð,
því þú grípur inn og gerir mikil undur.
Hér er frið og gleði' að fá.
Kæri Faðir, hlustaðu' á
er við vegsömum þig sem valdið hefur
2. erindi
Þér ég lúta vil, ó Guð, og lofa nafnið þitt
og lofsyngja þér af hjartans lyst.
Miskunnar og náðar þinnar nýt ég sérhvern dag.
Hér í nærveru þinni ég finn að friður þinn er,
er þú fyllir mitt hjarta af þér.
3. erindi
Þú sem vilt að allir fái vegsemd þína' að sjá,
þér við viljum færa´ okkur sjálf að fórn.
Láttu eldinn þinn í hjarta okkar kveikja þrá
um að þjóðirnar heyri' um þitt frelsi og fylgi þér.
Elsku faðir, hvers væntirðu’ af mér?
Íslenskur texti: Guðlaugur Gunnarsson, 30.10.1998, að sænskri og enskri fyrirmynd.
