Íslenska
Hvað gerir jólin okkar svona einstök?
Hvað gerir jólin okkar svona einstöksvo allt er bjart og hjartahlý öll handtök?Er jatan kannski ósköp innantómmeð auma stjörnu' og dapran helgidóm?Nei, jólastjarnan ljómar er ég sé Guðs sonfrá sinni jötu gefa von.En skiptir jólagjafamagnið máliog magafylli kjöts með rauðu káli?Er friður heims og heimilanna þáþað hlé í stríði‘ er jólin boðið fá?Nei, jólastjarnan ljómar er ég sé Guðs sonfrá sinni jötu gefa von.Er stjarnan aðeins punt og jólaprýðiog pælir nokkur í hvað hjartað skrýði?Fékk Guð ei leyfi ljós að tendra sittsvo lýsi það upp hjarta mitt og þitt?Jú, jólastjarnan ljómar er ég sé Guðs sonfrá sinni jötu gefa von.Guðlaugur Gunnarsson þýddi6. desember 2017.https://www.dr.dk/nyheder/kultur/klassisk/svend-eriks-julesang-fik-taarerne-frem-i-hele-danmark-nu-kan-du-hoere-den
