Sérstök bók

Íslenska

Sérstök bók

Sú er á meðal bóka minna sérstök, heilög bók,já, Biblían, er Orð Guðs til mín talar.Og leðurband og eðalpappír engu við það jókþví innihaldið er það sem mér svalar.
Ég les og kafa djúpt í orðin, drekk þau í mig öll,þau eiga fólgin í sér kraft og gleði.Því Ritningin hún segir mér að Guðs son bar mitt bölog bætti allt, er líf sitt lagði‘ að veði.Hún segir mér hve undri lík Guðs elska sé til mínþó einhvern veginn villst ég hafi‘ af vegi.Í kærleik sínum laðar mig og kallar heim til sín,í Kristi Jesú nýja von ég eygi.
Og þegar les ég þessa bók þá talar Guð mín til,hann tjáir mér sinn vilja og mig leiðir.Sinn anda mér hann gefur svo hans vegi fylgja vilog vegferð mína heim til Guðs mér greiðir.
Svo dýrmæt er mér bókin sú er blessar lífið mittað ber ég þrá í hjarta‘ að aðrir merki.Því alla menn í víðri veröld elskar Guð svo heittað orð hans boða vil í lífi‘ og verki.
Guðlaugur Gunnarsson