Íslenska
Í himninum
Í himninum, í himninum,þar sem Herran Guð vor býr,hve dýrleg verður dvöl þar æ,þar er Drottins faðmur hlýr.Þar líta munum lausnarannog lifa æ í sátt við hann,við Drottinn allsherjar.Í himninum, í himninumDrottins hátign ljómar skær.Þar bliknar jafn vel sólin sjálf,þegar skín Guðs dýrðin tær.Og ekkert þar að óttast er:Um eilífð standa munum vérhjá Drottni allsherjar.Ó, Drottinn Jesús, legg oss liðog leið oss heim til þínog hreinsa oss af allri synd,veit oss afl, er styrkur dvín.Ó, gef þú, Guð, að rætist þrá,að getum hugrökk staðið þáhjá Drottni allsherjar.Guðlaugur Gunnarssoneftir norskri fyrirmynd haustið 1981
